Ríkisstjórnin verður að sinna utanríkishagsmunum Íslands af alvöru og kappi

Kvöldverðarboð leiðtoga Norðurlanda heima hjá Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur á sunnudag hefur vakið verðskuldaða athygli, en norrænar þjóðir stilla nú saman strengi sína í varnar-, öryggis- og utanríkismálum með mun afdráttarlausari hætti en áður.

Það er hins vegar áhyggjuefni af hverju forsætisráðherra Íslands var ekki við borðið.

Kristrún Frostadóttir hefur gefið skýringar á því, en þó ekki skýrari en svo að alls ekki er ljóst hvort henni var boðið eða ekki.

Líkt og fram kemur í Morgunblaðinu í dag segir forsætisráðherra að sér hafi verið gert viðvart um gestaboð Mette með skömmum fyrirvara, en í viðtali við Rúv. sagði Þórunn Sveinbjarnardóttir verðandi þingforseti fyrirvarann svo skamman að kalla mætti „eftiráboð“ en ekki hefði þótt „svara kostnaði

...