Íslenska karlalandsliðið í handbolta hafnaði í 9. sæti á heimsmeistaramótinu sem nú stendur yfir í Króatíu, Danmörku og Noregi. Íslenska liðið vann alla þrjá leiki sína í riðlakeppninni, gegn Grænhöfðaeyjum, Kúbu og Slóveníu, og komst áfram í milliriðlakeppnina með fullt hús stiga eða fjögur stig
HM 2025
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Íslenska karlalandsliðið í handbolta hafnaði í 9. sæti á heimsmeistaramótinu sem nú stendur yfir í Króatíu, Danmörku og Noregi.
Íslenska liðið vann alla þrjá leiki sína í riðlakeppninni, gegn Grænhöfðaeyjum, Kúbu og Slóveníu, og komst áfram í milliriðlakeppnina með fullt hús stiga eða fjögur stig.
Liðið lagði Egyptaland og Argentínu í milliriðlinum en tapaði fyrir Króatíu sem gerði það að verkum að Króatía, Egyptaland og Ísland enduðu öll með átta stig. Króatía og Egyptaland fóru áfram í átta liða úrslitin þar sem liðin voru með bestu innbyrðismarkatöluna en Ísland sat eftir með sárt ennið.
„Ef ég man rétt var okkur spáð í kringum
...