Kveðið er á um meðalhóf í stjórnsýslulögum sem felur í sér að ekki má grípa til strangari aðgerða af hálfu ríkisins en brýn þörf er á.
Jón Sigurgeirsson
Hver er glæpur Flokks fólksins?
Í 2. gr. laga nr. 21 frá 2006 stendur: „1. Stjórnmálasamtök: Flokkar eða samtök sem bjóða fram í kosningum til Alþingis eða sveitarstjórna.“ Það er því enginn vafi á því að Flokkur fólksins er stjórnmálasamtök.
Í 3. gr. sl. er kveðið á um það að stjórnmálasamtök sem fá a.m.k. einn mann kjörinn á þing eigi rétt á styrk úr ríkissjóði. Flokkur fólksins uppfyllir þau skilyrði.
Skv. lögum nr. 109 frá 2021 kom ný grein nr. 5. a) sem hljóðar svo:
„Skilyrði úthlutunar á fé úr ríkissjóði og frá sveitarstjórnum er að viðkomandi stjórnmálasamtök séu skráð skv. I. kafla C, hafi áður uppfyllt upplýsingaskyldu sína við ríkisendurskoðanda skv. 8. og 9.
...