Áform eru um að flytja málverkið af Mónu Lísu á nýjan stað innan Louvre-safnsins og er það hluti af miklum endurbótum sem gerðar verða á safninu á næstu árum. BBC greinir frá og segir að forseti Frakklands, Emmanuel Macron, hafi staðið fyrir framan þetta þekktasta verk Leonardos da Vincis þegar hann tilkynnti fyrirhugaðar breytingar sem eigi að vera lokið 2031. Þá verði gestir rukkaðir sérstaklega fyrir að berja Mónu Lísu augum. Bætti hann því við að efnt yrði til alþjóðlegrar samkeppni um hönnun á öðrum inngangi í safnið með það að markmiði að létta á biðröðinni sem myndast gjarnan við hinn fræga glerpýramída.
Gjaldskrárbreytingar verða einnig kynntar á næstunni þannig að íbúar utan ESB munu þurfa að borga meira fyrir að heimsækja safnið. Um 75% gesta sem heimsækja safnið daglega skoða Mónu Lísu og er því talin sérstök þörf á að bæta aðgengið að verkinu verulega.