Spá Íslandsbanki gerir ráð fyrir að verðbólga verði við markmið bráðlega.
Spá Íslandsbanki gerir ráð fyrir að verðbólga verði við markmið bráðlega. — Morgunblaðið/Eggert

Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir að verðbólga verði að jafnaði 3,6% á þessu ári. Þetta kemur fram í nýrri Þjóðhagsspá frá bankanum.

Fram kemur að stöðugra verðlag erlendis, takmarkað launaskrið og stöðugt gengi krónu stuðli einna helst að þeirri hjöðnun. Á næsta ári gerir bankinn ráð fyrir 3,0% verðbólgu að jafnaði en að lengra niður komist hún ekki. Árið 2027 er gert ráð fyrir því að verðbólga mælist 3,2% að jafnaði.

„Stærsti óvissuþáttur til skemmri tíma varðar kjarasamninga fyrir þann hluta vinnumarkaðar sem enn á eftir að skrifa undir. Þar að auki má nefna almenna óvissu sem tengist stjórnarskiptum hér innanlands jafnt sem erlendis. Samkvæmt okkar spá fer verðbólga ekki niður í markmið Seðlabankans á spátímanum en fer engu að síður inn fyrir efri vikmörk verðbólgumarkmiðsins í mars næstkomandi,“ segir

...