Einkennandi fyrir skúlptúra Roberts Jacobsen er jafnvægi milli þess óáþreifanlega og áþreifanlega, breytileg ásýnd mismunandi sjónarhorna sem öll eru áhugaverð líkt og í verkinu Minning um stein. Þar nýtir höfundurinn líka fleiri grunnstef…
Robert Jacobsen (1912-1993) Minning um stein / Erindring om en sten, 1971-1972 Járn, 62 x 66 x 40 cm
Robert Jacobsen (1912-1993) Minning um stein / Erindring om en sten, 1971-1972 Járn, 62 x 66 x 40 cm

Einkennandi fyrir skúlptúra Roberts Jacobsen er jafnvægi milli þess óáþreifanlega og áþreifanlega, breytileg ásýnd mismunandi sjónarhorna sem öll eru áhugaverð líkt og í verkinu Minning um stein. Þar nýtir höfundurinn líka fleiri grunnstef myndlistar eins og línur og form ferhyrnings, kúlu og hrings, opin og lokuð form, sem vega salt milli léttleika og þunga. Listamaðurinn hefur mótað hamraða áferð á opna ferninginn og á hliðar litla kubbsins ofan á kringlóttu undirstöðunni, haldið öðrum flötum sléttum og málað allt svart að lokum.

Verkið er frá síðari hluta farsæls ferils Jacobsens og með titlinum er hann ef til vill að vísa í upphafið, en hann hjó í stein áður en hann sneri sér að málmskúlptúrum. Eftir að hafa glímt við möguleika steinsins til hins ýtrasta hélt hann til Parísar árið 1947 og hóf þar að sjóða saman járnfleti í þrívíða skúlptúra í anda geómetrískrar abstraksjónar

...