Íslensku bókmenntaverðlaunin voru afhent í 36. sinn við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gærkvöldi. Þau Kristín Ómarsdóttir, Rán Flygenring og Guðjón Friðriksson hlutu verðlaunin að þessu sinni sem Halla Tómasdóttir forseti Íslands afhenti. Við sama tækifæri hlaut Stefán Máni Íslensku glæpasagnaverðlaunin – Blóðdropann. Á myndinni eru forseti Íslands, Stefán Máni, Guðjón, Rán, Guðrún Yrsa systir Kristínar, Logi Már Einarsson menningarráðherra og Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda. » 64