Dýrmætt er fyrir borgarstjórn að funda reglulega með fulltrúum Reykjavíkurráðsins og heyra sjónarmið þeirra milliliðalaust.
Kjartan Magnússon
Kjartan Magnússon

Kjartan Magnússon

Menntamál, samgöngur, íþróttir og félagsmál eru ungmennum ofarlega í huga, að því er fram kom á sameiginlegum fundi borgarstjórnar og Reykjavíkurráðs ungmenna síðastliðinn þriðjudag. Margar góðar ábendingar komu fram á fundinum um málefni ungmenna í borginni.

Ungmennaráð eru vettvangur fyrir unglinga, yngri en átján ára, til að taka þátt í stjórnmálum. Sex ungmennaráð eru starfandi í Reykjavík og eiga þau samstarfsvettvang sem nefnist Reykjavíkurráð ungmenna. Fulltrúar úr Reykjavíkurráðinu funda árlega með borgarstjórn og fá þar tækifæri til að vinna hugðarefnum sínum brautargengi með umræðum og tillöguflutningi.

Á fundinum á þriðjudag kynntu ungliðarnir átta tillögur um margvísleg málefni. Segja má að þannig fái ungmennin ákveðið dagskrárvald. Öllum tillögunum var vísað áfram

...