Framhaldsmæling Polar Ammassak og Aðalsteins Jónssonar SU á loðnustofninum lýkur mögulega í dag eða á morgun. Endanlegt stofnmat Hafrannsóknastofnunar verður því líklega ekki kynnt fyrr en eftir helgi, en fátt bendir til að mæling skipanna skili…
Vetrarleiðangur Litlar líkur eru á að loðnuskipin geti haldið til veiða á næstu dögum, miðað við niðurstöður loðnumælinga vetrarins.
Vetrarleiðangur Litlar líkur eru á að loðnuskipin geti haldið til veiða á næstu dögum, miðað við niðurstöður loðnumælinga vetrarins. — Morgunblaðið/Börkur Kjartansson

Gunnlaugur Snær Ólafsson

gso@mbl.is

Framhaldsmæling Polar Ammassak og Aðalsteins Jónssonar SU á loðnustofninum lýkur mögulega í dag eða á morgun. Endanlegt stofnmat Hafrannsóknastofnunar verður því líklega ekki kynnt fyrr en eftir helgi, en fátt bendir til að mæling skipanna skili niðurstöðu sem er mikið frábrugðin bráðabirgðaniðurstöðum Hafrannsóknastofnunar.

Bráðbirgðaniðurstöður vetrarmælingar á loðnustofninum voru kynntar síðastliðinn föstudag. Kom fram að ekki hefði mælst nægilegt magn loðnu til að réttlæta endurskoðun á ráðgjöf Hafró um engar veiðar þetta árið. Þar sem þó hafi sést til austurgöngu var ákveðið að fyrrnefnd skip myndu halda áfram leit sinni suðaustur með landinu.

„Við eigum ekki von á því að þessi mæling muni leiða til

...