Örn Sigurðsson
Samtök um betri byggð hafa gert Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra grein fyrir því sem samtökin sakna í annars lofsverðum stjórnarsáttmála ríkisstjórnar hennar: skýrari áherslu á mikilvægi þess að hlúa að grundvallarmannréttindum einstaklinga með fullri ógildingu misvægis atkvæða og með afnámi þröskulda og lýðræðishindrana framboða í kosningalögum.
Misvægi atkvæða í kosningum til Alþingis er 100% frá sl. aldamótum, en var um 300% á síðari helmingi 20. aldar. Evrópuráðið, Feneyjanefndin og ÖSE benda hérlendum ráðamönnum ítrekað á að svo lengi sem slíkum kerfisgalla er viðhaldið verði Ísland seint talið þróað lýðræðisríki.
Neikvæðar afleiðingar misvægis atkvæða eru vel þekktar og auðskiljanlegar þótt aldrei sé rætt um þær opinberlega. Um þær ríkja bannhelgi, þagnarmúrar
...