Egill Egilsson fæddist í Reykjavík 10. nóvember 1969. Hann lést 16. desember 2024.
Foreldrar hans eru Unnsteinn Egill Kristinsson, f. 22. maí 1947 og Guðný Helga Jóhannsdóttir, f. 18. september 1947.
Systkini hans eru Jóhanna Berglind, f. 1966, Þórir, f. 1981 og Anna, fædd 1982.
Egill kvæntist fyrrverandi eiginkonu sinni, Gunnrúnu Theodórsdóttur, 8. nóvember 1998, þau skildu árið 2016, eftir 27 ára samleið. Börn þeirra eru: 1) Ívar, f. 26. janúar 1994. 2) Jóna Halla, f. 29. nóvember 1999, hún er í sambandi með Arnari Smára Þorsteinssyni. 3) Ómar Magni, f. 26. nóvember 2006.
Egill vann ýmis störf frá unglingsárum, í stálsmíði ásamt föður sínum, í fiskvinnslu, hann dvaldi um tíma á Flateyri ungur að árum hjá föðurafa sínum og vann
...