Mér finnst stundum, og ég brosi í kampinn, eins og fólk gleymi því að þetta er fyrst og síðast bíó. Þetta eru ekki heimildarmyndir búnar til af rannsóknarfólki í háskólum.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Myndinni um Dylan er leikstýrt af James Mangold. Hann hefur áður gert hina prýðilegu Walk the Line sem fjallaði um Johnny Cash (2005) og hann stýrði einnig síðustu Indiana Jones-mynd (2023). Þetta eru tveir lyklar – af mörgum – sem hjálpa til við skilja Dylan-myndina. Ég ætla ekki að rýna fast í hana sem slíka (dómur um hana birtist í blaði þessu eftir helgi) en hún er vissulega kveikjan að þessum skrifum. Hvernig hagar þetta form kvikmynda sér, hvað er hægt að gera með því og hvernig er hægt að misskilja það?
A Complete Unknown gerir t.d. ekki tilraun til að fanga allt æviskeið Dylans. Árin 1961-1965 eru í forgrunni, þegar Dylan verður til. Eða verður „ekki til“, svo ég
...