Fyrirhuguð eru skemmdarverk á Suðurlandsbraut í þágu borgarlínu

Herferð höfuðborgarinnar gegn einkabílnum heldur áfram og veldur æ meiri áhyggjum margra. Í Morgunblaðinu í gær mátti lesa um áhyggjur þeirra sem reka fyrirtæki við Suðurlandsbraut og næstu götur vegna fyrirhugaðra breytinga á aðalskipulagi Reykjavíkur sem miða að því að koma borgarlínunni fyrir á Suðurlandsbrautinni miðri.

Fjöldi fyrirtækja starfar á þessu svæði og hafa sum flutt sig úr miðborginni eftir að borgin þrengdi svo að einkabílnum að fólki var orðið nánast ómögulegt að sækja í verslanir þar.

Nú er fyrirhugað að setja borgarlínuna á miðja Suðurlandsbrautina og þar á hún að hafa tvær akreinar fyrir sig, sem öllum má ljóst vera að verða afar illa nýttar, yfirleitt tómar nema þegar stöku risastrætisvagn á þar leið um. Afleiðingin verður sú að þeir sem ferðast um á einkabíl, sem eru allur þorri almennings, ekki síst þegar hann sækir þjónustu verslana, þurfa að láta sér nægja eina akrein í hvora átt í stað tveggja nú. Þar með minnkar afkastageta götunnar

...