Umræða á sér nú stað innan íþróttafélaganna í landinu vegna erinda frá ríkisskattstjóra um skil á staðgreiðslu og tryggingagjaldi af launum íþróttafólks og þjálfara. Til þessa hafa verktakagreiðslur til þeirra sem fyrir félögin starfa verið algengt fyrirkomulag
Sigur Íþróttastarfi fylgir gjarnan gleði, en mikilvægt er að fylgja öllu opinberu regluverki sem um það gildir eins og nú er lögð mikil áhersla á.
Sigur Íþróttastarfi fylgir gjarnan gleði, en mikilvægt er að fylgja öllu opinberu regluverki sem um það gildir eins og nú er lögð mikil áhersla á. — Morgunblaðið/Eyþór

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

Umræða á sér nú stað innan íþróttafélaganna í landinu vegna erinda frá ríkisskattstjóra um skil á staðgreiðslu og tryggingagjaldi af launum íþróttafólks og þjálfara. Til þessa hafa verktakagreiðslur til þeirra sem fyrir félögin starfa verið algengt fyrirkomulag. Nú vilja skattyfirvöld breytingar og bót á málum, það er að starfsfólk íþróttafélaga verði launþegar þeirra.

Altæk tilmæli

Í bréfi sem sent var út undir lok síðasta árs gerði skatturinn forystu félaga sem eiga lið í efstu og næstefstu deildum karla og kvenna í fótbolta, handbolta og körfubolta grein fyrir þeirri skyldu að skila staðgreiðslu tekjuskatts og tryggingagjaldi. Tekið er fram í bréfi yfirvaldsins að þótt sjónum sé nú beint að þeim félögum sem fremst standa sé erindið altækt; tilmælin nái

...