Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Breska tækniritið IT Channel Oxygen hefur sett hugbúnaðarfyrirtækið Nanitor á topplista sinn yfir tíu mest spennandi félög í tölvuöryggi á árinu 2025.
Heimir Fannar Gunnlaugsson framkvæmdastjóri Nanitor segir í samtali við Morgunblaðið að samstarfsaðili félagsins, CAE Technologies, sem jafnframt er þriðji stærsti samstarfsaðili bandaríska hugbúnaðarrisans Cisco í Bretlandi, hafi tilnefnt Nanitor á listann.
Spurður um þýðingu segir Heimir að það skipti máli að vera nefndur í sömu andrá og mörg önnur fyrirtæki sem eru framarlega á breska markaðnum í netöryggi. „Við fáum aukinn sýnileika, tiltrú og jákvæð viðbrögð, og athygli vaknar á því sem við erum að gera. Við viljum ná til aðila sem sjá hag sinn í að bjóða Nanitor til sinna
...