Þriggja mánaða úthaldi Loftleiða, leiguflugsfélags Icelandair, í ferðum milli Punta Arenas í Síle og Union Glacier á suðurskautinu lýkur nú um mánaðamótin. Síðan í nóvemberbyrjun hefur mannskapur frá félaginu, níu manna hópar sem hver er ytra einn…
Póll Þotan á flugbrautinni í Union Glacier. Til þess staðar er rúmlega fjögurra stunda flug beint í suður frá Síle.
Póll Þotan á flugbrautinni í Union Glacier. Til þess staðar er rúmlega fjögurra stunda flug beint í suður frá Síle. — Ljósmynd/Hjörleifur Jóhannesson

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

Þriggja mánaða úthaldi Loftleiða, leiguflugsfélags Icelandair, í ferðum milli Punta Arenas í Síle og Union Glacier á suðurskautinu lýkur nú um mánaðamótin. Síðan í nóvemberbyrjun hefur mannskapur frá félaginu, níu manna hópar sem hver er ytra einn mánuð í senn, verið í ferðum þessum sem eru á vegum ALE (Antarctic Logistics and Expeditions), ferðaskrifstofu sem sérhæfir sig í ævintýraferðum á framandi slóðir.

Árstíðir snúa öflugt

Árstíðir á suðurskautinu snúa öfugt við norðurslóðir. Í Antarktíku, eins og póllinn syðra er stundum kallaður, er sumar í desember, janúar og febrúar. Nú er haustið þarna að ganga í garð og því er fluginu nú að ljúka. Búðir og aðstaða á svæðinu er tekin saman og grimmur vetur handan við hornið á sama tíma og dag lengir

...