„Ekki hætta og setjast út í horn og bíða eftir að eitthvað gerist heldur vera virkur og búa þannig til meiri gleði og lífshamingju í lífið. Það er líka afar mikilvægt að vera í góðum tengslum við fjölskylduna.“
Anna Laufey Þórhallsdóttir og Lúðvík Lúðvíksson hafa búið á Sléttuvegi í fjögur ár og líkar það vel.
Anna Laufey Þórhallsdóttir og Lúðvík Lúðvíksson hafa búið á Sléttuvegi í fjögur ár og líkar það vel. — Morgunblaðið/Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir

Þau hættu bæði að vinna þegar þau náðu sextíu og sjö ára aldri en segjast aldrei hafa setið auðum höndum. „Það eru þrettán ár síðan ég hætti að vinna og nítján ár síðan Lúðvík hætti,“ segir Anna Laufey en Lúðvík segir að sér hafi þótt erfitt að hætta. „Ég var fyrrverandi skipstjóri og hafnsögumaður í Reykjavík og gegndi einnig störfum yfirhafnsögulögmanns og fyrst eftir að ég fór á eftirlaun fannst mér þetta eins og að vera bara að fara í gott sumarfrí. Þegar mér fannst þetta orðið heldur langt frí og ég var orðinn svolítið leiður þá fór ég að hitta karlana í vinnunni. Sem betur fer hitti ég þannig á að það var allt á hvolfi og brjálað að gera á hafnsöguvaktinni og þá sagði ég nei nú er ég hættur, lokaði hurðinni og þakkaði Guði fyrir að vera laus við þetta þras og vesen,“ segir Lúðvík.

Sátt við að hætta störfum þrátt fyrir að vera ánægð í vinnunni

Anna

...