ADHD-samtökin gera alvarlegar athugasemdir við grænbók um stöðu ADHD-mála á Íslandi. Grænbókin kom nýverið út og var skrifuð af þar til skipaðri nefnd af þáverandi heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórssyni, fyrir rúmlega ári
ADHD-mál Grænbókarnefndin var skipuð í desember 2023 og var ætlað að skila niðurstöðum fyrir 1. júní 2024. Grænbókin var kynnt í desember 2024.
ADHD-mál Grænbókarnefndin var skipuð í desember 2023 og var ætlað að skila niðurstöðum fyrir 1. júní 2024. Grænbókin var kynnt í desember 2024. — Ljósmynd/Pexels

Í brennidepli

Sonja Sif Þórólfsdóttir

sonja@mbl.is

ADHD-samtökin gera alvarlegar athugasemdir við grænbók um stöðu ADHD-mála á Íslandi. Grænbókin kom nýverið út og var skrifuð af þar til skipaðri nefnd af þáverandi heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórssyni, fyrir rúmlega ári.

Segja ADHD-samtökin í umsögn sinni í samráðsgátt að þau fagni að grænbókin hafi verið gerð, en telja þó alvarlega annmarka á vinnu starfshópsins. Segja þau núverandi útgáfu algerlega ónothæfa sem grundvöll frekari stefnumótunar í málaflokknum.

Fjallað var um grænbókina í Morgunblaðinu síðasta mánudag þar sem meðal annars kom fram að grænbókarnefndin teldi að gæðum á bæði greiningum og meðferð við taugaþroskaröskuninni ADHD væri ábótavant. Segir

...