Ég er alltaf með svo ótrúlega mikið af hugmyndum fyrir sjónvarpsvinnuna mína, þannig að ég er aldrei róleg fyrr en ég er búin að miðla því til sem flestra og helst í sjónvarpi. Fjölmiðlavinna er örugglega ein skemmtilegasta vinna sem til er. Og ég hef alltaf verið með mjög gott áhorf á mitt efni í útsendingum, til dæmis í Íslandi í dag á Stöð 2, og stundum alveg lygilega mikið þannig að ég er ekkert að fara að hætta því,“ segir Vala aðspurð hvort hún sé að hugleiða að setjast í helgan stein.

Hvað hefðir þú viljað vita þegar þú varst 20 ára?

„Ég hefði viljað vita strax tvítug hvernig maður losnar við að fá króníska streitu sem hefur háð mér í svo mörg ár og stundum gert mitt líf erfitt. Ég hefði viljað vita öll trixin sem ég kann í dag gegn streitunni sem hefur hrjáð mig svo lengi.“

...