Pálmi Ragnar Pálmason er fæddur 31. janúar 1940 í Reykjavík. „Ég man fyrst eftir mér í Menntaskólanum í Reykjavík, en faðir minn var rektor við skólann og íbúð rektors þá í skólanum. Á barnaskólaárunum bjuggum við í Garðastræti. Á sumrin var ég í sveit, fyrst á Reykhólum, svo í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði en síðar á Gerðubergi í Hnappadalssýslu. Allt var þetta fólk mér gott og dvölin á hverjum stað góð og þroskandi.“

Pálmi gekk í Miðbæjarskólann, „Gaggó Aust“, landspróf í Vonarstræti og varð stúdent frá í MR 1960. „Ég var virkur í félagsstarfi í MR, var Scriba scolaris í fimmta bekk og forseti Framtíðarinnar í sjötta bekk. Var í leiknefnd í fjórða bekk og tók þátt í uppfærslu á leikriti Shakespeares en hef ekki verið beðinn um að stíga á svið síðan. Í MR kynntist ég mörgum þeim sem svo urðu lífstíðarvinir mínir. Þar hóf ég t.d. þátttöku í briddsklúbbi

...