Þrjár prinsessur bíða eftir prinsinum sínum og að ævintýri þeirra hefjist. Hvað gerist ef prinsinn kemur ekki? Um það fjallar Hver vill vera prinsessa?, nýr söngleikur í anda Disney-ævintýranna eftir Raddbandið, Söru Martí og Stefán Örn Gunnlaugsson …
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Þrjár prinsessur bíða eftir prinsinum sínum og að ævintýri þeirra hefjist. Hvað gerist ef prinsinn kemur ekki? Um það fjallar Hver vill vera prinsessa?, nýr söngleikur í anda Disney-ævintýranna eftir Raddbandið, Söru Martí og Stefán Örn Gunnlaugsson sem verður frumsýndur í Tjarnarbíói á morgun, 1. febrúar, klukkan 13.
Raddbandið skipa söng- og leikkonurnar Auður Finnbogadóttir, Rakel Björk Björnsdóttir og Viktoría Sigurðardóttir. Þær hafa allar unnið saman áður í ólíkum leikhúsverkefnum en í covid-faraldrinum fóru þær að hittast til að syngja saman og úr varð prógramm um jólastress og móðurhlutverkið sem þær hafa flutt víða, meðal annars á tónleikum í Salnum í desember.
„Sara tók
...