„Það eru allir sammála um það að þetta sé tómt klúður og nú er komið að því að finna á þessu lausn,“ segir Páll Gunnlaugsson, arkitekt og fyrrverandi stjórnarformaður Búseta, um byggingu vöruhússins við Álfabakka 2
Óskar Bergsson
oskar@mbl.is
„Það eru allir sammála um það að þetta sé tómt klúður og nú er komið að því að finna á þessu lausn,“ segir Páll Gunnlaugsson, arkitekt og fyrrverandi stjórnarformaður Búseta, um byggingu vöruhússins við Álfabakka 2.
Hvaða lausn sérðu fyrir þér?
„Ég er ekki með lausnina enda þekki ég ekki málið til hlítar. Það verður að fara fram samtal á milli borgarinnar, byggingaraðila og nágrennisins.“
Finnst þér koma til greina að rífa húsið?
„Það er ekki mitt að meta það, en það hlýtur að koma til skoðunar að einhverju leyti að minnsta kosti.“