Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra – já, það munar ekki um titilinn – Jóhann Páll Jóhannsson sagði frá því í samtali við Morgunblaðið í gær að hann hygðist, helst á fyrsta degi þings, leggja fram frumvarp til að hægt yrði að koma Hvammsvirkjun af stað.
Þetta er jákvætt og raunar nauðsynlegt því að eftir áratuga tafir þessarar virkjunar og annarra, auk tafa við uppbyggingu flutningskerfisins, er raforkuöryggi orðið óviðunandi hér á landi. Þá nemur fjárhagslegt tjón þjóðarinnar svimandi fjárhæðum á hverju ári sem tekst að tefja framkvæmdir.
Fyrirkomulag þessara mála hefur reynst stórgallað og eftir því er ekki lengur vinnandi. Örlítill hluti landsmanna, 3% samkvæmt nýlegri mælingu, tefur og stöðvar allar framkvæmdir, með hrikalegum afleiðingum.
Þessu verður að breyta.
...