Heitar umræður spunnust um styrkjamálið í Dagmálaþætti dagsins, en gestir þáttarins eru þau Pawel Bartoszek þingmaður Viðreisnar og Sigríður Á. Andersen þingmaður Miðflokksins.
Meðal annars var rætt um vandræðagang flokkanna við að ganga frá skráningu á stjórnmálasamtakaskrá Skattsins í byrjun árs 2022, en til þess að eiga rétt á opinberum styrkjum ber flokkum að vera skráðir.
„Eftir því sem ég best veit þá voru flokkarnir búnir að uppfylla þetta tiltekna skililyrði, það hefur þá hvergi komið fram annað en að Viðreisn, Samfylkingin og Miðflokkurinn hafi uppfyllt skilyrðin,“ sagði Pawel.
Blaðamaður benti þá á að Viðreisn hefði skilað tilkynningu 25. janúar. Ef viðmiðið væri lokadagur ríkisins til að greiða út styrkinn sem er fyrir 25. janúar, þá hafi Viðreisn skilað degi
...