Þórunn segir foreldra sína hafa byrjað snemma að kynna þeim systkinunum þann mikla menningararf sem leikrit og leikhús hafa að geyma.
Listir og menning hafa leikið stórt hlutverk í lífi Þórunnar Sigurðardóttur frá því hún var ung stúlka.
Listir og menning hafa leikið stórt hlutverk í lífi Þórunnar Sigurðardóttur frá því hún var ung stúlka. — Morgunblaðið/Karítas

Þórunn fagnaði 80 ára afmæli sínu með pomp og prakt í sameiginlegri veislu með eiginmanni sínum, Stefáni Baldurssyni leikstjóra, síðastliðið haust, í Tjarnarbíói, húsinu þar sem tókust með þeim ástir fyrir rúmri hálfri öld.

Þrátt fyrir að vera komin á hið svokallaða „gulláraskeið“, tímabilið þar sem flestir setja tærnar upp í loft og byrja að njóta efri áranna, er Þórunn hvergi nærri hætt að auðga og dýpka listalífið hér á landi og er nú að ljúka stóru verkefni sem tengist stofnun þjóðaróperu á Íslandi, enda spáir hún ekkert í aldurinn og segir ástríðu fyrir menningu drífandi afl í lífi sínu.

„Ég er alin upp við mikinn kúltúr“

Þórunn er Reykvíkingur í húð og hár, fædd og uppalin í höfuðborginni. Hún er næstelst sex barna hjónanna Sigurðar E. Ólasonar, hæstaréttarlögmanns og deildarstjóra í fjármálaráðuneytinu,

...