40 ára Jenný er Hafnfirðingur, ólst upp í Suðurbænum og hefur búið þar allt sitt líf fyrir utan nokkurt skeið í Frakklandi. Hún er með meistaragráðu í markaðs- og alþjóðaviðskiptum frá HÍ. Jenný starfar sem markaðsstjóri hjá Íslandshestum, sem er eitt stærsta hestaferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi, en er einnig sjálfstætt starfandi sem bæði klínískur dáleiðari og jógakennari. Í gegnum fyrirtæki sitt, Faðmur, býður Jenný upp á fjölbreytta þjónustu sem miðar að því að efla andlega og líkamlega heilsu kvenna á meðgöngu og eftir fæðingu. Einnig býður hún upp á dáleiðslumeðferðina hugræna endurforritun fyrir börn, ungmenni og fullorðna.
Jenný kennir meðal annars meðgöngusund þar sem áhersla er lögð á að styrkja líkamann og róa taugakerfið og meðgöngujóga, þar sem konur fá tækifæri til að tengjast líkama sínum og undirbúa sig fyrir fæðinguna á jákvæðan
...