Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Áttatíu manns stofnuðu Newcastle klúbbinn á Íslandi 18. febrúar 2003. Starfsemin lá í dvala í um átta ár en var endurvakin í desember 2023 og hittast félagsmenn gjarnan í Ölveri til að horfa saman á leiki. Hafsteinn Þórðarson var einn stofnfélaga klúbbsins og hefur verið gjaldkeri hans frá upphafi. „Ég hef farið 40 sinnum á leiki með Newcastle á heimavelli, í „musteri guðanna“, frá 1979 og auk þess séð fjölmarga leiki liðsins á útvelli,“ segir hann. „Það eru ekki margir vellir liða í efstu deild á Englandi sem ég hef ekki heimsótt.“
Hafsteinn hefur búið í Hafnarfirði í 50 ár en fyrirtækið Glerborg var lengi að stærstum hluta í eigu þeirra Antons Bjarnasonar. Hann ólst upp á Bræðraborgarstígnum í Vesturbæ Reykjavíkur, spilaði fótbolta
...