Friðbjörn Þór Jónsson fæddist 18. júlí 1936 á Kjartansstöðum í Skagafirði. Hann lést á Hjartadeild Landspítalans í Reykjavík 24. janúar 2025.

Foreldrar hans voru Jón Friðbjörnsson og Hrefna Jóhannsdóttir. Bróðir Friðbjörns er Ólafur Axel Jónsson, f. 15. september 1934, d. 26. október 2018, kvæntur Báru Þ. Svavarsdóttur, f. 9. september 1936.

Friðbjörn kvæntist Sigrúnu Ámundadóttur 31. desember 1958. Hún var fædd 28. mars 1934, d. 15. maí 2024.

Börn Friðbjörns og Sigrúnar eru fjögur: 1) Ámundi, f. 1957, giftur Margréti Traustadóttur, f. 1956, börn þeirra eru Sigrún, Ari Trausti og Guðný Rós. 2) Jóhann, f. 1959, giftur Regínu Sveinsdóttur, f. 1955, börn hans eru Hrefna, Helgi Örn og Björn Þór. 3) Kristín f. 1960 og 4) Rúnar Þór, f. 1964, d. 2018.

...