— Morgunblaðið/Eggert

Fólk sem er á besta aldri í dag hefur upplifað allar stærstu breytingar sem hafa orðið á heiminum síðustu áratugina. Elsta kynslóð þessa lands man til dæmis vel eftir því þegar Ísland var hernumið, sem olli mikilli angist og átti svo eftir að umturna lífi sveitamanna á lítilli eyju í Atlantshafi. Fyrst kom óttinn, svo fylltist bærinn skyndilega af vel lyktandi mönnum með vel klippt hár, fulla vasa af tyggjói og sígarettum. Í stað þess að fagna þessum glæsilegu herrum og þeirra innkomu í íslenskt samfélag fór karlpeningurinn upp á afturlappirnar. Íslenskar stúlkur, sem hrifust af þessum flottu gæjum, voru í framhaldinu úthrópaðar sem lauslætisdrósir. Þegar sagan er skoðuð hefur margt breyst til batnaðar í okkar samfélagi. Ekki bara það að konur séu í dag frjálsari og geti valið með hverjum þær deila rúmi heldur streymdu peningar inn í íslenskt hagkerfi á stríðsárunum og komu okkur út úr mestu vosbúðinni.

...