Angela Merkel, fyrrverandi Þýskalandskanslari og leiðtogi kristilegra demókrata, CDU, gagnrýndi í gær eftirmann sinn, Friedrich Merz, fyrir að hafa treyst á atkvæði frá þýska jaðarhægriflokknum AfD til þess að koma þingsályktunartillögu um útlendingamál í gegnum þingið á miðvikudag.
Ályktunin kallaði m.a. eftir varanlegu eftirliti við landamæri Þýskalands og að ólöglegum innflytjendum yrði vísað úr landi. Var hún samþykkt með 348 atkvæðum gegn 345, en 75 fulltrúar AfD snerust á sveif með kristilegu flokkunum.
Merkel sagði að CDU ætti að vinna með „lýðræðisflokkunum“ til þess að leita lausna á hælisleitendamálum frekar en að þiggja aðstoð frá AfD. Merkel hefur hingað til forðast að gagnrýna Merz, þrátt fyrir að Merz hafi sjálfur gagnrýnt stefnu hennar í málefnum hælisleitenda frá 2015.
Þingmenn
...