Í dag, 31. janúar, eru liðin 100 ár frá fæðingu Valgarðs Briem, góðvinar míns. Valgarð fæddist í Reykjavík og var þar búsettur alla tíð. Hann var fjórða barn foreldra sinna, þeirra Ólafs Jóhanns Briem, skrifstofustjóra hjá Kveldúlfi og SÍF, og Önnu Valgerðu Briem, f. Claessen. Valgarð ólst upp að Sóleyjargötu 17 og gekk í Miðbæjarbarnaskólann. Vorið 1945 brautskráðist hann úr Verzlunarskólanum, einn af sjö í fyrsta stúdentaárgangi skólans, og lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands lauk hann vorið 1950.

Á námsárunum í Versló felldu þau hugi saman hann og skólasystirin Benta Margrét, dóttir Jóns sýslumanns í Borgarnesi Steingrímssonar og Karitasar Guðmundsdóttur. Þau trúlofuðu sig 1948 á miðri Hvítárbrú og giftust 14. mars 1950. Um vorið sigldu þau til London, þar sem Valgarð sérhæfði sig í sjórétti og hlaut löggildingu sem niðurjöfnunarmaður sjótjóna. Sumarið 1951 hófu þau búskap, lengst af

...