Arnar Geir Hinriksson var fæddur á Ísafirði 12. mars 1939. Hann lést af slysförum 3. janúar 2025. Foreldrar hans voru Hinrik Guðmundsson skipstjóri á Ísafirði, f. 27. feb. 1897, d. 30. des. 1993, og Elísabet Guðrún Hálfdánardóttir, f. 22. sept. 1906, d. 25. feb. 1989.
Bræður Arnars voru Þórir G. Hinriksson, f. 2.6. 1931, d. 19.12. 2017, og Hálfdán Daði Hinriksson, f. 15.6. 1936, d. 16.4. 2018, Sigurjón Hinriksson, f. 7.6. 1949, d. 9.11. 1987. Auk þeirra ólst bróðurdóttir Arnars, Kristín Þórisdóttir, upp á heimilinu.
Arnar var ókvæntur og barnlaus.
Arnar lauk landsprófi frá Gagnfræðaskóla Ísafjarðar, fór hann síðan í Menntaskólann á Akureyri og síðar í Háskóla Íslands þar sem hann lauk embættisprófi í lögfræði 1966. Arnar stundaði sjómennsku á sumrin meðfram
...