— Morgunblaðið/Eyþór

Landsmenn fengu flestir heldur betur að finna fyrir vetrinum í gær þegar brast á með hvassviðri og ofankomu víðast hvar. Í höfuðborginni sátu ófáir ökumenn fastir í bílum sínum og þurftu margir að leita hjálpar til að losa ökutækin úr sköflum. Þessi maður sem hér sést var staddur í Breiðholti um miðjan dag og gerði þar tilraun til að ná í pakkasendingu í sjálfsafgreiðslustöð Póstsins.