Tónlistarmaðurinn ISSI gaf út lagið Gleyma í dag, þar sem hann syngur í óvæntu samstarfi við Valdimar Guðmundsson. Lagið var frumflutt í Ísland vaknar á K100, þar sem ISSI sagði frá óvenjulegum uppruna þess. Í fyrra var hann beðinn að flytja lag í jarðarför ungs drengs sem lést í slysi. Þar hittust þeir Valdimar í fyrsta sinn – ólíkir tónlistarmenn sem áttu þó sameiginlegan stað í hjarta drengsins.

Lagið er fullt af tilfinningum, enda innblásið af lokum þriggja ára ástarsambands.

Viðtalið má sjá og heyra í heild sinni á K100.is.