„Kröfum Skattsins um að þau sem fyrir íþróttafélög starfa verði launþegar en ekki verktakar fylgir kostnaðarauki sem þau standa ekki undir. Félögin fara að óbreyttu á hausinn,“ segir Þórhildur Garðarsdóttir, formaður Knattspyrnufélags Reykjavíkur (KR)

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

„Kröfum Skattsins um að þau sem fyrir íþróttafélög starfa verði launþegar en ekki verktakar fylgir kostnaðarauki sem þau standa ekki undir. Félögin fara að óbreyttu á hausinn,“ segir Þórhildur Garðarsdóttir, formaður Knattspyrnufélags Reykjavíkur (KR).

Skattyfirvöld sendu á dögunum erindi á þau íþróttafélög í landinu sem eiga lið í efstu og næstefstu deildum karla og kvenna í fót-, hand- og körfubolta. Farið er þess á leit að leikmenn og þjálfarar sem starfa fyrir félögin verði og séu launþegar en ekki verktakar sem fá greiðslur samkvæmt innsendum reikningum. Einnig er tekið fram að íþróttafélög og starfsemi þeirra verði tekin til sérstakrar skoðunar Skattsins, enda séu vísbendingar um vanhöld í skilum þeirra á staðgreiðslu af launum og fleiru.

...