„Ég sagði við hann í nafni okkar allra að krafan væri að húsið yrði fjarlægt og því fundinn annar staður og ítrekaði við hann hvað það væri glórulaust að troða svona húsi niður í íbúðabyggð. Það væru til iðnaðarsvæði sem væru eini rétti staðurinn fyrir hús af þessari stærðargráðu fyrir iðnað og vörugeymslu,“ segir Kristján Háfdánarson, formaður húsfélagsins í Árskógum 7, eftir fund íbúa í Árskógum 7 með borgarstjóra.
Hann segir að fram hafi komið hjá borgarstjóra að verið væri að vinna í málunum en engin tillaga lögð fram.
„Við lögðum fram undirskriftalista með 2.830 undirskriftum þar sem farið var fram á verkstöðvun, en eins og kunnugt er hafnaði borgarstjórn þeirri kröfu.“
Kristján segir borgarstjóra hafa lýst því fyrir hópnum að hann væri dapur yfir þessu og vonaðist til að ásættanleg lausn fyndist.
„Það sem blasir við í þessu máli er að það verður gríðarlega kostnaðarsamt að fara í raunhæfar aðgerðir og sá kostnaður
...