Friðbert Friðbertsson, eigandi bílaumboðsins Heklu, hefur keypt í gegnum félagið Jökla ehf. eitt elsta varahlutafyrirtæki landsins, Stillingu hf.
Þetta staðfestir Júlíus Bjarnason, framkvæmdastjóri og einn eigenda Stillingar, í samtali við Morgunblaðið.
Stilling hefur um 45 starfsmenn og rekur verslanir með bílavörur af margvíslegum toga í Reykjavík, Akureyri, Hafnarfirði og Selfossi.
Júlíus segir aðspurður að kaupverðið fáist ekki uppgefið og kveðst reikna með að viðskiptin klárist á næstu mánuðum. „Viðskiptin verða frágengin í mars en það er beðið eftir að Samkeppniseftirlitið veiti blessun sína,“ segir hann.
Júlíus segir að nýir eigendur hafi gefið það út að rekstur Stillingar muni haldast óbreyttur.
...