Ingólfur Ómar Ármannsson sendir þættinum hrollkalda vísu, enda óhætt að segja að nú sé vetrarlegt um að litast: Veðrahrak og hríðarfár hryðjum blakar þöndum. Stirðna vakir, vötn og ár vefjast klakaböndum
Pétur Blöndal
p.blondal@gmail.com
Ingólfur Ómar Ármannsson sendir þættinum hrollkalda vísu, enda óhætt að segja að nú sé vetrarlegt um að litast:
Veðrahrak og hríðarfár
hryðjum blakar þöndum.
Stirðna vakir, vötn og ár
vefjast klakaböndum.
„Það er vandlifað,“ skrifar Ólafur Stefánsson á Boðnarmjöð. „Þegar ég ætlaði að lesa Vísnahorn í málgagninu fékk ég Vísnahornið í allt öðru blaði. Auðvitað ágætir þættir báðir, en kallast þetta ekki upplýsingaóreiða á nútímamáli?“
Þótt forn sé ég fæ mér ei tóbakskorn,
en finn mér í blaðinu Vísnahorn,
En fjandakornið,
...