Soffía Magnúsdóttir fæddist í Kópavogi 17. mars 1964. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Selfossi 16. janúar 2025 eftir skamma sjúkdómslegu.
Foreldrar Soffíu eru (Guðjón) Magnús Einarsson, f. 11.3. 1934, d. 29.10. 2019, og Gyða Sigríður Siggeirsdóttir, f. 27.6. 1941. Soffía á tvo bræður, Einar Bjarna, f. 1962, og Siggeir, f. 1965. Hún á einnig þrjár hálfsystur samfeðra: Freyju, f. 1956, Jónu Magneu, f. 1960, og Sigrúnu Ingu, f. 1959.
Soffía ólst upp í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík. Að sumarlagi var hún oft hjá afa sínum og ömmu á Kirkjubæjarklaustri og frændfólki á Hörgslandi. Aðspurð sagðist hún oft vera frá Klaustri frekar en Reykjavík. Soffía gekk í hverfisskólana í Smáíbúðahverfinu, Breiðagerðisskóla og Réttarholtsskóla. Síðar fór hún í Fjölbrautaskólann við Ármúla og í Komvux Lund.
Soffía giftist hinn
...