Trygve Slagsvold Vedum, fjármálaráðherra Noregs og formaður norska Miðflokksins, tilkynnti í gær að flokkur hans hefði sagt upp ríkisstjórnarsamstarfinu við Verkamannaflokkinn. Var þingflokkur Miðflokksins einhuga um þessa niðurstöðu, en…
Stjórnarslit Leiðtogar Miðflokksins tilkynna hér fjölmiðlum ákvörðun sína.
Stjórnarslit Leiðtogar Miðflokksins tilkynna hér fjölmiðlum ákvörðun sína. — AFP/Haakon Mosvold Larsen

Trygve Slagsvold Vedum, fjármálaráðherra Noregs og formaður norska Miðflokksins, tilkynnti í gær að flokkur hans hefði sagt upp ríkisstjórnarsamstarfinu við Verkamannaflokkinn.

Var þingflokkur Miðflokksins einhuga um þessa niðurstöðu, en stjórnarflokkana hafði greint á um þrjár reglugerðir af átta í fjórða orkupakka Evrópusambandsins, sem Jonas Gahr Støre forsætisráðherra vildi að Noregur tæki upp.

Vedum sagði á blaðamannafundi með Marit Arnstad þingflokksformanni að hann vildi að ríkisstjórnin tæki aftur til sín stjórn orkumála og forðaðist frekari samþættingu við ESB. Sagði Vedum að því kæmi ekki til greina að tengja Noreg við það sem hann kallaði hinn „vanvirka orkumarkað og orkustefnu“ ESB.

Reglugerðirnar þrjár snúa að notkun á endurnýjanlegum

...