Halldór segir „hinn helga stein“ geta verið stórhættulegan. Hann bendir á að við 67 ára aldurinn, þegar fólk verður aldrað samkvæmt íslenskum lögum eða hættir atvinnuþátttöku, standi það á tímamótum. Skyndilega hægist á lífinu sem áratugina á undan einkenndist af ákveðnum takti. Dagarnir sem áður voru í rútínu geta orðið óreiðukenndir eða of rólegir þegar sest er í helgan stein, kyrrsetan verður meiri og þá getur vantað örvun og virkni, hvort sem er líkamlega, félagslega eða sálræna.
Undirbúningur fyrir efri árin er mikilvægur að sögn Halldórs og mælir hann með að fólk hugi að þessu tímabili snemma á ævinni og leiti ráða varðandi það hvernig takast eigi á við nýtt líf eftirlaunaaldursins.
„En „prinsippið“ er að vera sáttur. Þetta er lífsfasinn eða aldurinn þegar fólk fer að horfa til baka, á lífsins áskoranir og sigrana,“
...