„Í raun og veru á kannski hluti af þessari starfsemi miklu frekar heima á atvinnusvæði heldur en miðsvæði samkvæmt aðalskipulagi. Ef við skoðum Garðheimahúsið; þó stórt sé þá er starfrækt þar verslun sem án vafa á heima á miðsvæði og er hluti…
Stjórnsýslukæra Úrskurðarnefnd skilar ekki af sér fyrir mánaðamót.
Stjórnsýslukæra Úrskurðarnefnd skilar ekki af sér fyrir mánaðamót. — Morgunblaðið/Eggert

„Í raun og veru á kannski hluti af þessari starfsemi miklu frekar heima á atvinnusvæði heldur en miðsvæði samkvæmt aðalskipulagi. Ef við skoðum Garðheimahúsið; þó stórt sé þá er starfrækt þar verslun sem án vafa á heima á miðsvæði og er hluti af þjónustu við hverfið,“ segir Páll Gunnlaugsson, arkitekt og fyrrverandi stjórnarformaður Búseta.

Hann segir að allir séu sammála um að þetta sé tómt klúður og nú sé komið að því að finna á þessu lausn.

Kristján Háfdánarson, formaður húsfélagsins í Árskógum 7, segir að á fundi með borgarstjóra þar sem afhentur var undirskriftalisti með 2.830 nöfnum hafi komið skýrt fram að krafan væri að húsið yrði fjarlægt og því fundinn annar staður. Hann ítrekaði hvað það væri glórulaust að troða svona húsi niður í íbúðabyggð. » 2