Ásdís Ásgeirsdóttir
Alveg frá því að ER kom á skjáinn á tíunda áratug síðustu aldar hefur undirrituð verið veik fyrir læknaþáttum. Grey's Anatomy er einnig frábær sería sem vert er að horfa á aftur.
Þátturinn Chicago Med, sem hóf göngu sína 2015, er sýndur í Sjónvarpi símans og er dæmi um góðan læknaþátt. Hasar er í gangi á bráðadeildinni og að sjálfsögðu kviknar ástin, eða lostinn, milli starfsfólks sem vinnur ötullega að því að bjarga mannslífum. Svo er auðvitað Dr. House á Netflix; hann klikkar alls ekki. House er sjarmerandi persóna, þrátt fyrir að vera óalandi og óferjandi. Hann er fíkill í verkjalyf og bryður Vicodin eins og Smarties. En kostir hans eru að hann er ofurklár og finnur oftast hvað er að hrella sjúklinga sem haldnir eru svo sjaldgæfum sjúkdómum að enginn annar en House og hans teymi
...