Samninganefndir kennara, ríkis og sveitarfélaga hafa frest til klukkan 13 á morgun til að taka afstöðu til innanhússtillögu sem Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari lagði fram í kjaradeilunni þeirra á milli. Tillagan jafngildir kjarasamningi verði hún samþykkt. Felur hún m.a. í sér að deila um jöfnun launa á milli markaða verði útkljáð með virðismati og verkáætlun til 20 mánaða.
Efnislega er um að ræða framhald á vegferð sem ríkissáttasemjari lagði upp með í lok nóvember þegar samninganefndirnar gerðu með sér samkomulag um friðarskyldu til tveggja mánaða. Þess ber að geta að þar sem ekki er um miðlunartillögu að ræða fer hún ekki beint í atkvæðagreiðslu hjá félagsfólki Kennarasambands Íslands.
„Ég legg til að þessi deila um jöfnun launa á milli markaða verði útkljáð með því að aðilar fari í sameiginlega vegferð sem er annars vegar fólgin í virðismati starfa og hins vegar í verkáætlun sem aðilar myndu vinna á næstu
...