Kvikmyndin Veðurskeytin, í leikstjórn Bergs Bernburg, verður heimsfrumsýnd á alþjóðlegu kvikmynda­hátíðinni í Rotterdam, sem hófst í gær, hinn 30. janúar, og stendur til 9. febrúar, að því er segir í tilkynningu. Veðurskeytin er leikin heimildarmynd sem fjallar um stormasöm tímamót í lífi ástríðufulls fræðimanns, doktors í miðaldafræðum við Cambridge-háskóla, sem þarf skyndilega að endurskoða líf sitt þegar hann greinist með geðhvörf.