Kristrún Ríkey Ólafsdóttir, tvítug körfuboltakona úr Hamri/Þór, er nýliði í landsliðshópi Íslands sem Benedikt Guðmundsson landsliðsþjálfari tilkynnti í gær vegna leikja gegn Tyrklandi og Slóvakíu í undankeppni Evrópumótsins 6. og 9. febrúar. Báðir leikirnir fara fram erlendis.
Kristrún er 186 sm á hæð og hefur í vetur tekið 7,6 fráköst að meðaltali í leik með nýliðunum í úrvalsdeildinni ásamt því að skora 6,2 stig að meðaltali í leik. Hún hóf meistaraflokksferilinn með uppeldisfélaginu Þór á Akureyri og lék síðan með Haukum áður en hún fór til Hamars/Þórs árið 2023.
Aðrar í landsliðshópnum eru eftirtaldar: Anna Ingunn Svansdóttir (Keflavík), Agnes María Svansdóttir (Keflavík), Dagbjört Dögg Karlsdóttir (Val), Danielle Rodriguez (Fribourg), Diljá Ögn Lárusdóttir (Stjörnunni), Emma Sóldís
...