![Vanur Callum Lawson hefur leikið með fjórum íslenskum liðum.](/myndir/gagnasafn/2025/02/04/7d4886f7-b40a-4cd0-9ed2-aaccefb0b55b.jpg)
Vanur Callum Lawson hefur leikið með fjórum íslenskum liðum.
— Morgunblaðið/Árni Sæberg
Breski körfuknattleiksmaðurinn Callum Lawson er kominn til Íslands enn á ný og er genginn til liðs við Keflvíkinga í annað sinn á ferlinum. Lawson, sem er 28 ára framherji, hefur í vetur leikið með Crailsheim í þýsku B-deildinni. Hann kom fyrst til Íslands árið 2020 og lék með Keflavik en varð ári síðar Íslandsmeistari með Þór í Þorlákshöfn. Hann vann titilinn aftur með Val ári síðar og lék á Hlíðarenda í tvö ár en síðan með Tindastóli á síðasta tímabili.