Breytingar Arne Slot vill að reglum um fjölda varamanna verði breytt.
Breytingar Arne Slot vill að reglum um fjölda varamanna verði breytt. — AFP/Glyn Kirk

Arne Slot knattspyrnustjóri Liverpool vill stækka leikmannahópa í leikjum ensku úrvalsdeildarinnar úr 20 og í 23 vegna mikils álags liða sem spila í Evrópukeppni. Níu varamenn eru leyfðir í deildinni sem stendur en Slot vill að þeir verði 12. Var Hollendingurinn ósáttur við að ekki var pláss fyrir Joe Gomez og Federico Chiesa í leikmannahópnum sem mætti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni um liðna helgi.