Hjá Landhelgisgæslunni eru spennandi og krefjandi verkefni fram undan á árinu sem miða að því að auka sjálfvirknivæðingu í vöktun og eftirliti á hafsvæðinu umhverfis landið auk þess að bæta eftirlit með lögsögunni úr lofti
![Tilgátumynd Svona sjá menn fyrir sér að landratsjárnar líti mögulega út þegar uppsetningu er lokið. Fjórar slíkar stöðvar verða í notkun á landinu öllu.](/myndir/gagnasafn/2025/02/06/145cd404-5d86-4f8d-9c7d-c2dd81fe04e5.jpg)
Tilgátumynd Svona sjá menn fyrir sér að landratsjárnar líti mögulega út þegar uppsetningu er lokið. Fjórar slíkar stöðvar verða í notkun á landinu öllu.
Viðtal
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Hjá Landhelgisgæslunni eru spennandi og krefjandi verkefni fram undan á árinu sem miða að því að auka sjálfvirknivæðingu í vöktun og eftirliti á hafsvæðinu umhverfis landið auk þess að bæta eftirlit með lögsögunni úr lofti.
Þetta segir Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar aðspurður um helstu verkefni stofnunarinnar á þessu ári. Ný tækni og ný tæki munu gera Gæslunni kleift að sinna enn betur sínum lögbundnu verkefnum.
„Við teljum fulla þörf á að efla þá heildarstöðumynd á hafinu sem nauðsynlegt er að Landhelgisgæslan búi yfir,“ segir Georg.
Stórt skref í þá átt verður stigið á árinu með
...