Stafrænar lausnir eru stóra málið í starfi námsbrautar í nýsköpun sem nú hefur verið sett á laggirnar á Landspítala. Margrét Dís Óskarsdóttir er yfirlæknir sérnáms við sjúkrahúsið og stýrir þessu starfi sem nýlega hófst
![Aðgerð Heilbrigðisþjónustan er í örri þróun og mikilvægt að starfsfólkið á gólfinu taki þátt í þeirri þróun.](/myndir/gagnasafn/2025/02/06/13a001b3-f3e1-48c1-98c4-039e6f687a3f.jpg)
Aðgerð Heilbrigðisþjónustan er í örri þróun og mikilvægt að starfsfólkið á gólfinu taki þátt í þeirri þróun.
— Landspítalinn/Þorkell Þorkelsson
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Stafrænar lausnir eru stóra málið í starfi námsbrautar í nýsköpun sem nú hefur verið sett á laggirnar á Landspítala. Margrét Dís Óskarsdóttir er yfirlæknir sérnáms við sjúkrahúsið og stýrir þessu starfi sem nýlega hófst. Á sjúkrahúsinu hefur þróun stafrænna lausna verið í deiglunni mörg undanfarin ár. Smíðuð hafa verið og þróuð tölvukerfi í samvinnu við sérfræðinga, bæði innan spítalans og utan, og þau halda utan um sjúkraskrár sem eru mikilvæg gögn þegar lagt er á ráðin um meðferð sjúklinga. „Í raun er framþróun á hinu stafræna sviði forsenda árangurs í öllu starfi hér,“ segir Margrét.
Mikilvæg klínísk þekking
Í fyrsta hópnum sem nú sækir þessa námsbraut eru tveir námslæknar í lyflækningum, einn í heimilislækningum og annar til sem
...